Afhending fyrstu íbúða á Dalbraut

Afhending fyrstu íbúða á Dalbraut

Í lok ágúst voru fyrstu íbúðir við Dalbraut 4 á Akranesi afhendar nýjum eigendum. Sala á íbúðum hefur gengið mjög vel, 23 íbúðir eru seldar og aðeins 3 íbúðir eru óseldar. Salur á 1. hæð hússins, sem telur 1.328 m2 var afhendur Akranesbæ fyrr í sumar.

Bæjarlind -sala íbúða gengur vel

Bæjarlind -sala íbúða gengur vel

Sala á íbúðum í Bæjarlind 5 hefur gengið vel en 39 íbúðir eru seldar, aðeins 4 íbúðir eru óseldar ásamt þakíbúðum. Til dæmis er íbúð 203 á söluskrá, hún er 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með bílastæði í upphitaðri bílageymslu, svalalokanir fylgja. Nánari upplýsingar um íbúðina má sjá hér https://baejarlind.is/ibudir/#/ibud/0203

 

Álalind 18-20

Álalind 18-20

Stór dagur í framkvæmdum við Álalind 18-20. Steypuvinna búin og búið að flagga á þakinu.
Álalind 18-20 er 7 hæða stallað hús með 57 íbúðum og bílakjallara.

Þakgarður á Akranesi

Þakgarður á Akranesi

Unnið er að því að gera glæsilegan 700 fm þakgarð á 2. hæð við Dalbraut 4. Þakgarðurinn verður sameiginlegt svæði fyrir íbúa hússins þar sem hægt verður að njóta veðurblíðunnar á Akranesi. Bekkir, göngustígar, blómaker, lýsing og glæsileg hellulögn mynda skemmtilegt umhverfi fyrir íbúana til að njóta. Við hönnun og gerð þakgarðsins var haft að leiðarljósi að svæðið verði eins viðhaldslítið og kostur er.

Álalind 18-20

Álalind 18-20

Framkvæmdir við Álalind miðar vel og er uppsteypu að ljúka þessa dagana. Innivinna hefur verið unnin samhliða uppsteypu, útbúnar voru veðurvarnir til að vinna innanhúss í vetur. Þetta hefur gert það kleift að húsið er þurrt og því hægt að hlaða innveggi og vinna bæði pípu- og raflagnir óháð veðri. Um miðjan apríl var byrjað að setja glugga í húsið og gengur sú vinna vel.  Vinna er hafin við að setja upp álklæðningu á húsið.