Byggingarfélagið Bestla

Fyrirtækið hefur verið í stöðugri þróun frá upphafi og síðastliðinn áratug þróað, byggt og afhent fjölda glæsilegra og vandaðra eigna. Einnig hefur fyrirtækið unnið að þróun og skipulagi byggingarverkefna af ýmsum gerðum og stærðum. Hjá okkur starfar öflugt teymi fagaðila sem hafa fjölbreyttan bakrunn á sviði hönnunar og byggingu fasteigna.

Fyrirtæki innan fjölskyldunnar

Byggingarfélagið Bestla var stofnað í mars 2014. Upphaflega er félagið fjölskyldufyrirtæki, stofnað af þeim feðgum Jóni Ágústi Garðarsyni, blikksmíðameistara og véla- og orkutæknifræðingi, framkvæmdastjóra Bestlu og föður hans Garðari Erlendssyni, blikksmíðameistara.

Árið 2016 bættist Guðjón Helgi Guðmundsson, húsasmíðameistari, í eigandahópinn, og gegnir hann stöðu stjórnarformanns. Árið 2019 fór Garðar á eftirlaun og nýtur nú efri áranna í einu af fjölbýlum Bestlu í Kópavogi.

Fólkið okkar
Bestla fylgir ströngustu gæðakröfum við framkvæmd bygginga. Við höfum á að skipa öflugu teymi sem samanstendur af tæknifræðingum, verkefnastjórum, húsasmíða-, blikksmíða-, pípulagninga- og málameisturum ásamt ráðgjöfum.

Saman búum við að gríðarlegri reynslu á sviði hönnunar, þróunar, byggingu og eftirfylgni fasteigna.  

 

Fastráðnir starfsmenn hjá Bestlu eru 14 talsins en á hverju ári vinna um 70 undirverktakar hjá okkur í fullu starfi. Við veljum með okkur reynslumikið fólk og leggjum mikla áherslu á að rækta samstarf við trausta fagaðila sem stunda vönduð vinnubrögð.

Öflug uppbygging

Fyrsta eignin í eigu Bestlu var fjölbýli við Boðaþing 2-4 í Kópavogi, sem félagið keypti fullbúið að utan. Með kaupunum eignuðumst við okkar fyrstu íbúðir, 28 talsins..

Fyrsta fjölbýlishúsið sem Bestla byggði frá grunni er við Álalind 10 í Kópavogi. Í framhaldinu fóru tvö verkefni af stað Bæjarlind 5 og Álalind 18-20 en öll þessi fjölbýlishús eru staðsett í nýju hverfi í Lindunum í Kópavogi, kallast það Glaðheimahverfi. Á Akranesi hefur Bestla komið sterkt inn í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu undanfarin 5 ár. Við höfum byggt yfir 100 íbúðir í þremur fjölbýlishúsum. Þetta eru fasteignir við Dalbraut 4, Þjóðbraut 3 og 5. Við Dalbraut 4 er að auki Þjónustumiðstöð eldriborgara á jarðhæð hússins. Til viðbótar er verkefni við Garðabraut 1 að fara af stað en þar munu 50 íbúðir rísa í 7 hæða fjölbýlishúsi.

 Í Kópavogi heldur uppbygging áfram og við Hafnarbraut 4-8 á Kársnesi hefur verið byggt 4ra hæða fjölbýlishús með 38 íbúðum. Einnig er uppbygging í gangi á atvinnuhúsnæði við Tónahvarf 12.

Byggt í heimabyggð

Höfuðstöðvar Bestlu eru við Akralind 8 í Kópavogi. Enn sem komið hefur félagið nær eingöngu byggt í Kópavogi en okkur varð snemma ljóst að bæjarfélagið stundar fagleg og nákvæm vinnubrögð sem falla vel að starfsemi Bestlu. Við leggjum mikinn metnað í að kaupendur fái íbúðirnar sínar afhentar á réttum tíma og þá vegur þungt skilvirkni allra þeirra sem að ferlinu koma.

Að auki kýs Bestla að byggja hús sem eru hluti af vel skipulögðum hverfum. Vönduð íbúð í traustu húsi er enn verðmætari ef hún er staðsett í umhverfi þar sem fólk dafnar líka utan steyptra veggja heimilisins. Uppbygging Kópavogs hefur verið mikil síðustu ár og við erum afar þakklát að hafa fengið að vera þátttakendur í þeirri vegferð.

 

Frá Hvarfahverfi til Akraness

Bestla er í dag með tvö stór verkefni í þróun. Annað þeirra brýtur upp hefðina og færir okkur alla leið til Akraness en hitt er í heimahögunum í Hvörfunum í Kópavogi.

Árið 2018 undirritaði Bestla samning við Akraneskaupstað um byggingu 1.330 fermetra þjónustumiðstöð fyrir aldraða við Dalbraut 4. Um er að ræða fimm hæða hús með 26 íbúðum, þjónustu- og verslunarrýmum á fyrstu hæð hússins og bílakjallara. Áætlað er að miðstöðin verði afhend á vormánuðum 2020.

Í framhaldi mun Bestla reisa til viðbótar þrjú fjölbýli á samliggjandi reitum milli Dalbrautar og Þjóðbrautar. Alls verða um 92 íbúðir í húsunum auk þjónusturýma og verður heildar fermetra fjöldi um 13.500.

Einnig er Bestla með í þróun 3.100 fermetra atvinnuhúsnæði við Tónahvarf í Kópavogi sem verður hannað fyrir rekstur stærri og smærri fyrirtækja.

Horft til framtíðar

Hluti af okkar framtíðarsýn felst í að tryggja að öll okkar verkefni séu byggð eftir sömu forskrift. Við viljum að viðskiptavinir okkar geti treyst því að við fylgjum ströngustu gæðakröfum og séum sífellt að uppfæra og betrumbæta verkferlana okkar. Með stöðugum umbótum getum við markvisst byggt traustari stoðir fyrir öfluga atvinnustarfsemi og vönduð heimili fyrir blómlega og blandaða byggð eldri og yngri kynslóða.