Framkvæmdir á Kársnesi
Framkvæmdir við Hafnarbraut 4-8 í Kópavoginum ganga vel, en um fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús er að ræða með 40 íbúðum og 40 stæðum í upphituðum bílakjallara.
Framkvæmdir við Hafnarbraut 4-8 í Kópavoginum ganga vel, en um fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús er að ræða með 40 íbúðum og 40 stæðum í upphituðum bílakjallara.
Íbúðir í Álalind 18-20 eru komnar í sölu, um er að ræða 57 íbúða fjölbýlishús í Glaðheimahverfi í Kópavogi. Allar nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna á glæsilegum söluvef, sjá Álalind 18-20 (alalind.is)
Við Þjóðbraut 3 og 5 mun Bestla byggja sitthvort 38 íbúða fjölbýlishúsið. Vinna er nú þegar hafin við að grafa fyrir undirstöðum við Þjóðbraut 3. Áætlað er að framkvæmdir við Þjóðbraut 5 hefjist fljótt á nýju ári.
Fjölbýlishúsin verða hvort um sig 5 hæða, með 38 íbúðir. 2ja til 4ra herbergja, frá 60 m2 til 125 m2. Áætluð verklok eru í lok árs 2022
Glæsilegt 5 hæða einingahús með 26 íbúðum og 26 bílastæðum í upphituðum bílakjallara. Þjónustumiðstöð fyrir eldriborgara er á fyrstu hæð, alls 1.328 m2 að stærð. Heildarstærð byggingar er 5.280 m2. Aðeins ein íbúð er óseld en um er að ræða 122 m2, 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með suðursvölum.
Framkvæmdir við Álalind 18-20 í Kópavogi ganga vel, nú á haustmánuðum er inni- og útivinna á fullu. Unnið er að því að klæða húsið að utan og inni er verið að mála, flísaleggja, setja upp innréttingar svo einhver dæmi séu tekin. Gert er ráð fyrir að húsið verði fullklárað næsta vor 2021. Húsið er 57 íbúða fjölbýlishús og íbúðir frá 2ja herbergja til 4ra herbergja. Stærðir íbúða er frá 51 m2 til 205 m2.