Ný verkefni á Akranesi

Ný verkefni á Akranesi

Við Þjóðbraut 3 og 5 mun Bestla byggja sitthvort 38 íbúða fjölbýlishúsið. Vinna er nú þegar hafin við að grafa fyrir undirstöðum við Þjóðbraut 3. Áætlað er að framkvæmdir við Þjóðbraut 5 hefjist fljótt á nýju ári.

Fjölbýlishúsin verða hvort um sig 5 hæða, með 38 íbúðir. 2ja til 4ra herbergja, frá 60 m2 til 125 m2. Áætluð verklok eru í lok árs 2022

Dalbraut 4 á Akranesi

Dalbraut 4 á Akranesi

Glæsilegt 5 hæða einingahús með 26 íbúðum og 26 bílastæðum í upphituðum bílakjallara. Þjónustumiðstöð fyrir eldriborgara er á fyrstu hæð, alls 1.328 m2 að stærð. Heildarstærð byggingar er 5.280 m2. Aðeins ein íbúð er óseld en um er að ræða 122 m2, 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með suðursvölum. 

Í Kópavogi ganga framkvæmdir vel

Í Kópavogi ganga framkvæmdir vel

Framkvæmdir við Álalind 18-20 í Kópavogi ganga vel, nú á haustmánuðum er inni- og  útivinna á fullu. Unnið er að því að klæða húsið að utan og inni er verið að mála, flísaleggja, setja upp innréttingar svo einhver dæmi séu tekin. Gert er ráð fyrir að húsið verði fullklárað næsta vor 2021. Húsið er 57 íbúða fjölbýlishús og íbúðir frá 2ja herbergja til 4ra herbergja. Stærðir íbúða er frá 51 m2 til 205 m2.

Afhending fyrstu íbúða á Dalbraut

Afhending fyrstu íbúða á Dalbraut

Í lok ágúst voru fyrstu íbúðir við Dalbraut 4 á Akranesi afhendar nýjum eigendum. Sala á íbúðum hefur gengið mjög vel, 23 íbúðir eru seldar og aðeins 3 íbúðir eru óseldar. Salur á 1. hæð hússins, sem telur 1.328 m2 var afhendur Akranesbæ fyrr í sumar.

Bæjarlind -sala íbúða gengur vel

Bæjarlind -sala íbúða gengur vel

Sala á íbúðum í Bæjarlind 5 hefur gengið vel en 39 íbúðir eru seldar, aðeins 4 íbúðir eru óseldar ásamt þakíbúðum. Til dæmis er íbúð 203 á söluskrá, hún er 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með bílastæði í upphitaðri bílageymslu, svalalokanir fylgja. Nánari upplýsingar um íbúðina má sjá hér https://baejarlind.is/ibudir/#/ibud/0203

 

Álalind 18-20

Álalind 18-20

Stór dagur í framkvæmdum við Álalind 18-20. Steypuvinna búin og búið að flagga á þakinu.
Álalind 18-20 er 7 hæða stallað hús með 57 íbúðum og bílakjallara.