Boðaþing 2-4, 203 Kópavogi

Boðaþing 2-4, 203 Kópavogi

Fjölbýlishúsið Boðaþing 2 – 4 er staðsett í Kóparvogi í Þingahverfi. Boðaþing er 5 hæða staðsteypt fjölbýlishús með tveimur stigagöngum, 28 íbúðum og 32 bílastæðum í upphituðum bílakjallara. Fjölbýlið er steinað að utan og einangrað að innan. Íbúðir eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja, frá 100 m2 til 150 m2. Heildar stærð byggingar er 5.055 m2.

Arkitekt: KRark Kristinn Ragnarsson
Byggingarár: 2012

fylgdu okkur á facebook

@byggingarfelagidbestla

Staðsetning

Byggingarfélagið Bestla
Akralind 8
201 Kópavogur

sendu okkur póst

bestla@bestla.is

Bestla er stoltur styrktaraðili íþróttafélagana ÍA og HK. Vefvinnsla: ONNO ehf.  Allt myndefni birt með fyrirvara.

Úlfarsbraut 116

Úlfarsbraut 116

Sala á íbúðum í Úlfarsbraut 116 er hafin og eru 3 íbúðir þegar seldar.

Það eru íbúðir 301, 302 og 202.

Framkvæmdir eru langt á veg komnar og eru áætluð verklok í júní 2013.

Leiguíbúðir við Stórakrika 2-2C

Leiguíbúðir við Stórakrika 2-2C

Leigufélagið Bestla festi kaup á 13 íbúðum í Stórakrika 2-2C undir lok árs 2012, íbúðirnar eru frá 2ja herbergja til 4ra herbergja, þessar íbúðir eru hugsaðar sem leiguíbúðir. Eins og stendur eru þrjár 3ja herbergja íbúðir lausar til leigu, íbúðirnar eru frá 110 m2 til 117 m2. Með hverri íbúð fylgir stæði í bílakjallara sem og rúmgóð geymsla. Íbúðirnar eru nýlegar, aðeins hefur verið búið í þeim í stuttan tíma frá því húsið var byggt. Íbúðirnar hafa verið heilmálaðar og líta mjög vel út.

Leiguverð fyrir 3ja herbergja íbúð er 160 þúsund á mánuði að auki bætist við hússjóður. Um langtíma leigusamning er að ræða og gert er ráð fyrir bankaábyrgð að andvirði 3ja mánaða leigu. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna í gegnum netfangið, johanna@bestla.is

Aðeins tvær íbúðir eftir við Boðaþing 2-4

Aðeins tvær íbúðir eftir við Boðaþing 2-4

Vel hefur gengið að selja íbúðir við Boðaþing 2-4, nú eru aðeins eftir tvær íbúðir, íbúð 201 sem er 4ra herbergja 144,7 m2 glæsileg íbúð og íbúð 504 sem er stórglæsileg 144 m2 íbúð á efstu hæð með mikilli lofthæð og tveimur bílstæðum í kjallara, útsýnið úr þessari íbúð er stórbrotið.

Nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna hér,

Íbúð 204

Íbúð 504

Framkvæmdir hafnar við Úlfarsbraut 116

Framkvæmdir hafnar við Úlfarsbraut 116

Leigufélagið Bestla festi kaup á fjölbýlishúsi við Úlfarsbraut 116 í lok síðasta árs. Um er að ræða 3ja hæða, 9 íbúðna fjölbýlishús. Leigufélagið Bestla tók við húsinu á byggingarstigi 1, þ.e. búið var að steypa upp húsið. Framkvæmdir á vegum Leigufélagsins Bestlu hófust í desember og miðar þeim vel, búið er að loka húsinu og unnið er í að einangra og klæða húsið að utan. Framkvæmdir eru einnig hafnar innandyra. Áætluð verklok eru í júní 2013 og með vorinu verða íbúðirnar settar í söluferli.