Fyrr í sumar fóru framkvæmdir við Nauthólsveg 79 af stað. Þrjár byggingar verða á lóðinni með alls 63 íbúðum og 39 bílastæðum í upphituðum bílakjallara. En 11 bílastæði verða á lóðinni. Húsin eru 2ja – 5 hæða, staðteypt, einangruð og álklædd að utan. Íbúðir eru 1-4ra herbergja, frá 46 – 123 m2.

Arkitekt: Skala arkitektar

Verkfræðihönnun: Víðsjá

Raflagnahönnun: Tesla

Brunahönnun: Örugg verkfræðistofa

Lóðahönnun: Landslag